Héðins

hurðir

Héðins

hurðir

Héðins hurðir hefur verið með iðnaðarhurðir og bílskúrshurðir á boðstólum í áraraðir og áunnið sér traust viðskiptavina fyrir vandaðar hurðir sem standast sveiflukennt íslenskt veðurfar með glæsibrag. En ekki síður hefur úrvals þjónusta Héðins hurða átt ríkan þátt í ánægju viðskiptavina.

Sjáðu verðið strax

Þjónusta

Gerum tilboð í hurðir – hægt er að fylla út ósk um tilboð hér á vefsíðunni.
Veitum ráðgjöf varðandi áferð og liti, gluggaval, drifbúnað, opnunarbúnað, öryggisbúnað, ákeyrslubúnað og annað sem tilheyrir viðkomandi aðstæðum.

Iðnaðarhurðir: Til að tryggja réttan frágang og áhyggjulausa notkun annast Héðins hurðir uppsetningu á iðnaðarhurðum og tilheyrandi búnaði.

Bílskúrshurðir: Ef viðskiptavinir óska þess sjá Héðins hurðir um uppsetningu bílskúrshurða.

Sífellt algengara er að húsfélög og fyrirtæki séu með þjónustusamning við okkur, það þýðir að við mætum reglulega á staðinn til þess að viðhalda hurðunum hjá viðkomandi og sjá til þess að þær séu starfhæfar allan sólahringinn, allt árið um kring. Við mælum sérstaklega með þjónustusamningum í húsnæðum þar sem hurðir mega alls ekki stoppa.

Endilega hafið samband við sölumenn okkar til að fá frekari upplýsingar varðandi þjónustusamninga.

Í viðhaldsþjónustu felst m.a. að vinda upp léttigorma í samræmi við notkun og skipta um legur og víra sem eru farin að slitna.

Viðgerðarþjónustan snýr að öllum búnaði hurðanna. Varahlutir eru ávallt til á lager, þar á meðal hurðaflekar í standard lit 9002.

Neyðarsímanúmer vegna bilana: 660 2142

Fyrri verk

Sunnuakur

Lambasel

Furuás

Hafa samband

hurdir@hedinshurdir.is

516-2100

Íshellu 10, 221 Hafnarfjörður